Innipillur

January 6, 2012 in Grefilsvörur

Stjórnmálaskýrendur - Fylliraftar - Ferðafólk

Innipillurnar komnar aftur

Aðeins 600 krónur pillan. 

Nagladekk til sölu

January 6, 2012 in Grefilsvörur

Bílstjórar – Bílstjórar

Nýju nagladekkin loksins komin:

Aðeins 5.990,- stk. ef samið er strax.

Bjálkatangir

December 31, 2011 in Grefilsvörur

Stjórnmálafólk – Fjórflokkafylgjendur

Bakarar – Smiðir - Vantrúarfólk

Flísar í augum náungans?

Fáið ykkur …

BJÁLKATANGIR
fyrir árið 2012

Skellið ykkur á Bjálkatangir og sjáið
veröldina í nýju ljósi árið 2012.

Verð aðeins 18,999.-

Örfá stykki eftir.

Veðurstjórinn

December 31, 2011 in Grefilsvörur

Á að grilla?

Viltu fara á skíði?

Vantar þig afsökun til að vera heima?

VEÐURSTJÓRINN
Veldu þér þitt eigið veður

Hlægilegt verð

Aðeins kr. 39.999,-

Örfá stykki eftir

Eftirgrennslarinn

December 31, 2011 in Grefilsfréttir, Grefilsvörur

Veistu ekki hvert skal fara?

Veistu ekki hvert skal hringja?

Veistu ekki í hvern þú þarft að ná?

Láttu þá …

EFTIRGRENNSLARANN
Grennslast um það fyrir þig! 

Einstök uppfinning sem léttir þér lífið.

Verð aðeins 45,845.-

Varist eftirlíkingar - Átta ára ábyrgð.

Gaf út sína fyrstu bók fyrir jólin

December 28, 2011 in Grefilsfréttir

Seldist ekki neitt 

„Gríðarleg vonbrigði“, segir Hannes Hólmar. 

Bestu blogg Hannesar: Seldist ekki neitt fyrir jólin.

„Já, auðvitað eru það gríðarleg vonbrigði að hafa ekki selt eitt einasta eintak af bókinni, ég neita því ekki“, segir Hannes Hólmar Gestsson, en hann skipar þann vafasama sess að vera eini rithöfundurinn um þessi jól sem seldi enga bók.

Hver heldur þú að ástæðan sé fyrir þessari dræmu sölu?

„Það er erfitt að segja og gætu verið margar samtvinnaðar ástæður. Kannski er fólk bara búið að fá nóg af spennusögum og sækir frekar í eitthvað léttmeti eins og matreiðslubækur og gamanmál. Ef til vill var bókinni ekki rétt stillt út á söluborðum og svo má líka geta sér til um að hún hafi ekki verið rétt auglýst. Hver veit?“

Ætlarðu að skrifa aðra bók?

„Ég veit það ekki“, segir Hannes. „Það fóru fimm ár í að skrifa þessa bók og árangurinn er ekki beint sú hvatning sem ég þurfti. En auðvitað á maður aldrei að segja aldrei. Það koma jól eftir þessi jól.“

Þess má geta að sú bók sem seldist næstminnst um þessi jól var bókin Barátta mín, eftir Vigdísi Hauksdóttur alþingismann, en hún fór í átta eintökum.

Sharing Buttons by Linksku