Næsta sunnudag, 13 mars, verður hinn árlegi ormadagur haldinn hátíðlegur um land allt.

Glaður ormur á góðri stund. Myndin tengist efni tilkynningarinnar ekki beint.
Allir félagsmenn ÁAO eru hvattir til að mæta í hverfaveisluna í sínu hverfi, svo og allir aðrir sem unna ormum en eru ekki enn orðnir félagar í samtökunum.
Í hverfaveislunum verður boðið upp á kaldar kótilettur með kanelsykri áður en haldið verður í hina árlegu ormatínslu til bjargar þeim ormum sem hafa villst frá heimkynnum sínum út á stéttir og malbik þar sem þeirra bíður ekkert annað en kvalafullur klessudauði … þ.e., verði þeim ekki bjargað.
Klessudauði: Grafalvarlegt vandamál
Árlega farast í klessudauða meira en tvær milljónir orma, bara á Íslandi. Foreldrar sem missa þannig litlu ormana sína undir dekk og sóla, mitt í gleðiríkri vorkomunni, munu fæstir líta aftur glaðan dag.
Okkur sem Almættið hefur gefið meira vit en ormum ber að sjálfsögðu að forða okkar minnstu og hjálparlausustu bræðrum undan þessari helför áður en það er orðið of seint. Eru því allir ormaunnendur beðnir um að hafa með sér poka, ormatínur og disk undir kótiletturnar.
Síðar um kvöldið verður svo dansinn stiginn fram á rauða nótt í félagsheimilinu við Steinholtsgrafir við undirleik hljómsveitarinnar Gula servíettan.
Allir eru hjartanlega velkomnir.*
- Stjórnin.
*Nema þeir sem kunna ekki að meta orma. Þeir geta bara verið heima hjá sér og tekið til í sokkaskúffunni.

Athugasemdir