Okkur hér á Greflinum hefur bent á að í frétt sem birtist hér á síðunni í gær og fjallaði um komu nokkurra lóufugla til Hveragerðis var alls ekki um lóur að ræða heldur tjaldfugla sem líta allt öðruvísi út eins og alkunna er.
Þetta sést best á myndinni sem fylgdi fréttinni. Hún var tekin af fréttaljósmyndara Grefilsins, Böðvari Birki Brynjúlfssyni, sem einnig samdi fréttina sjálfa.
Eftir ritstjórnarfund hefur verið ákveðið að reka Böðvar Birki úr starfi enda óþolandi að hafa í vinnu menn sem vita ekkert hvað þeir eru að gera.
Um leið og ég undirritaður, fyrir hönd Grefilsins, bið lesendur, viðskiptavini og velunnara afsökunar á þessum leiðu mistökum vil ég ítreka þá skoðun mína að maður á aldrei að ráða í vinnu menn sem hafa verið reknir af Eyjunni.
Virðingarfyllst,
- Hóll Hauksson, ritstjóri innlendra frétta frá Suðurlandi.

Myndin sem um er rætt. Þetta eru víst alls ekki lóur, heldur svokölluð tjaldfygli.

Athugasemdir