“Liðaðist bara um”
segir sjónarvottur.
Samkvæmt afar áreiðanlegum heimildum Grefilsins sást til afturgöngu við Alþingishúsið í morgun.
“Já, ég sá eina áðan”, sagði Stína Söltoff gerlafræðingur í samtali við Grefilinn fyrir stundu. “Hún liðaðist bara um fyrir utan og hvarf svo inn í húsið. Ég held hún hafi farið inn í þingsalinn.”
Lögreglan hefur nú umkringt Alþingishúsið á meðan rannsókn fer fram og er almenningur beðinn að halda sig fjarri rétt á meðan, en talsverður fjöldi er þegar kominn á Austurvöll til að freista þess að sjá afturgönguna.
Að sögn Baldurs Jónssonar bóksala þá hefur það gerst nokkrum sinnum áður að sést hafi til afturgöngu við Alþingishúsið, síðast núna í byrjun mars. Í það skipti hefði hins vegar komið í ljós að þetta var bara Jóhanna að mæta á fund.


Athugasemdir