Neitaði öllu – Fundinn sekur
Skotinn á staðnum.
Hrosshesturinn Gustur Sörlason hefur verið líflátinn eftir að upp komst að hann olli bankahruninu haustið 2008 með skelfilegum afleiðingum fyrir þá fjölmörgu Íslendinga sem héldu að þeir hefðu fengið gefins lánaða peninga.
„Hann var drullusekur“, sagði Almennur Rómur Hauksson, formaður SÁTA, samtaka áhugafólks um tafarlausar aftökur. „Auðvitað neitaði hann öllu, en þeir gera það allir þessir delar.”
En er það siðlegt, að Gustur skyldi tekinn af lífi án réttarhalda?
„Réttarhalda? Þetta lið á ekki skilið að í það sé kastað krónu meira af almannafé. Nógu dýr er kúlan sem fer í hausinn á því.“
En hvaða sannanir fyrir sekt Gusts voru til staðar?
„Við þurfum engar sannanir. Það vita þetta allir.“
Telurðu að fleiri eigi eftir að fara sömu leið og Gustur?
„Algjörlega. Samtökin vaxa hratt og eftir því sem við verðum fleiri, því fleiri verða líflátnir. Það er alveg á hreinu.“
Einhver nöfn?
„Já, við erum algjörlega viss um að uppstoppaði ísbjörninn fyrir norðan var í slagtogi með Gusti. Við erum núna að láta lífga hann við svo við getum tekið hann af lífi“, sagði Almennur Rómur að lokum og var svo rokinn í að lesa fleiri bloggsíður.
Þess ber að geta að samkvæmt gögnum sem SÁTA hefur undir höndum bendir ýmislegt til að Lóurnar Heiðbjört og Hulda hafi verið höfuðpaurarnir í málinu, enda þykir grunsamlegt að þær skuli hafa flogið af landi brott strax eftir hrunið.


Loksins var hægt að taka einhvern af lífi og allir ættu að geta slakað á fram á nýtt ár.