Annað hvert hjónaband sprungið – 86 börn á leiðinni
Setti viagra í pulsurnar
Sættum okkur ekki við þetta segja kvenfélagskonur.
Sérkennilegt mál er nú komið upp í Þykkvabæ sem óhætt er að segja að hafi sett samfélagið þar á annan endann.
Í ljós hefur komið að Klara Kjarval, kartöflubóndi og sjoppueigandi í bænum ber að hluta til ábyrgð á þessu ástandi því upp úr áramótum tók hún upp á því að mylja og blanda viagra lyftitöflum í pulsurnar sem hún selur í sjoppunni, án vitundar viðskiptavina sem eru flestir karlkyns.
“Já, mér datt bara í hug að prófa þetta því mér fannst svo ægilega dauft yfir öllu hér í Þykkvabænum og lítið um að vera. Ég hafði áður prófað að gefa mínum kalli svona pulsu og þar sem árangurinn af því var mjög góður ákvað ég að deila gleði minn með öðrum hér í bænum. Mér datt ekki í hug að þetta myndi fara svona”, sagði Klara við Grefilsfréttir.

Viagrapuls
Að sögn Þóru Nesdal, formanns kvenfélags Þykkvabæjar og nágrennis, eru Þykkvabæjarkonur síður en svo ánægðar með framtak Klöru og því síður sáttar við afleiðingarnar.
“Hér er annað hvert hjónaband sprungið enda eru 86 börn á leiðinni og ekki ljóst hvaða menn eiga hvaða börn. Auk þess grunar okkur að einhverjir karlar frá Hellu hafi laumast til að nýta sér ástandið.”
“Gekk svona mikið á?”
“Ekkert smá,” sagði Þóra.
Ekki er vitað til að viagra-pillur hafi áður valdið jafnmiklu fjaðrafoki í einu bæjarfélagi, en talið er að fyrri hluta janúarmánaðar hafi karlar í Þykkvabæ keypt og borðað rúmlega fjögur þúsund pulsur hjá Klöru.
Við segjum nánar frá eftirmálum þessara atburða eftir sjö til átta mánuði.

Alveg er ég viss um að Dagrún mótorhjólabóndi í Oddsparti kemur eitthvað þarna við sögu