Vantrúarmeðlimir og annað öfgafólk athugið:
Árshátíð Vantrúarklúbbsins verður haldin í birkitrénu að Flúðum.
Dagskrá hátíðarinnar verður með hefðbundnu sniði:
1. Æðstuprestarnir sjö syngja Vantrúarlagið vinsæla,”Við eltum ykkur trúarnöttarana uppi”, og opna með því hátíðina. Stjórnandi er Reynir Harðarson, formaður Vantrúar.
2. Kveikt upp í eldstónni og lesið upp úr biblíunni.
3. Eineltir ársins valinn (sigrar Hjalti Rúnar þriðja árið í röð?)
4. Matthías Ásgeirsson flytur ræðuna “Nei, ég er alveg blásaklaus” sem er alltaf jafnskemmtileg og eru Vantrúarmeðlimir beðnir að hlæja mikið með.
5. Birgir Baldursson úthúðar trúaða pakkinu og rökstyður mál sitt. Vinsamlega gefið Birgi gott klapp eftir ræðuna. Hann á það skilið.
6. Valgarður Guðjónsson flytur sína árlegu tölu “Nei, ég sé ekkert athugavert við aðferðir Vantrúar”. Viðstaddir eru beðnir að kinka kolli hver til annars á meðan á ræðunni stendur og setja upp vandlætingarsvip.
7. Óli Gneisti syngur lag sitt “Ofsóknaróður og stoltur af því” (textanum verður dreift svo allir geti sungið með).
8. Frumflutningur á leikritinu “Með Jóninu Ben á heilanum” eftir Svan Sigurbjörnsson sem jafnframt fer með öll hlutverkin.
9. Þórður Ingvarsson fjallar um dauða biskupa af sinni alkunnu snilld. Vantrúarmeðlimir eru vinsamlega minntir á að lúta höfði í lotningu á meðan Þórður er í pontu.
10. Bjór á línuna í boði Jóns Steinars Ragnarssonar og dansinn stiginn fram á rauða nótt við undirleik Steinars og Stulla. Vinsamlega athugið að Jón Steinar er ekki í Vantrú þótt flestir haldi að hann sé það.
Allir velkomnir.


Ég mæti!