„Við viljum bara fá leiðréttingu“

segir Dilla Valgarðs hjá Kvenréttindafélaginu.

Dilla Valgarðs: „Eina sem við förum fram á er réttlæti.“

Kvenréttindafélag Íslands hefur ákveðið að skera upp herör gegn því sem það kallar „sjúklega karlavæðingu íslenskunnar“. Á meðal átaksverkefna er að fá opinberlega breytt ýmsum karlkyns uppnefnum og gera þau kvenlegri.

„Við erum orðnar dauðþreyttar á að vera stöðugt karlgerðar í uppnefnum. Við erum konur og eigum sama rétt og karlar á því að vera uppnefndar í réttu kyni.“

Geturðu nefnt einhver dæmi um þetta?

„Já, fjölmörg. Til dæmis karlkynsorðið bjánar. Við konur erum ekki bjánar heldur bjánur. Sama gildir um asna. Við konurnar erum auðvitað ösnur. Aðeins karlar eru asnar.“

Gildir þetta um öll uppnefni?

„Nei, ekki þau sem eru í hvorugkyni eins og til dæmis fífl.“

Þú átt sem sagt við að þið konurnar séuð ekki asnar heldur ösnur, ekki fávitar, heldur fávitur, ekki bjánar heldur bjánur, en sömu fíflin og karlarnir?

„Einmitt. Þetta segir sig sjálft, er það ekki?“

Jú.

Þess ber að geta að átakið er þegar farið í gang og er tekið við öllum ábendingum á skrifstofu Kvenréttindafélagsins á milli 9 og 5 alla virka daga.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku