Heyrði eitthvað surg
Breyttist í frosk
„Verð að lifa með þessu“, segir Björn Ingi
Björn Ingi Hrafnsson varð enn á ný fyrir óvæntum skakkaföllum í morgun þegar hann mætti í höfuðstöðvar netveldis síns til að fylgjast með gangi mála.
„Já, ég stóð nú bara þarna með fyrsta kaffibolla dagsins þegar ég heyrði eitthvað surg og svo ískur. Þegar ég hallaði mér fram til að sjá hvaðan þetta kom breyttist ég í frosk.“
Eru einhverjar skýringar á þessu?
„Nei, ekki enn. En ég ætla upp á slysadeild á eftir að láta kíkja á þetta.“
Hvernig finnst þér að vera froskur?
„Það er auðvitað bagalegt en ég tek þessu af æðruleysi. Þetta getur komið fyrir alla.“
Við hér á Greflinum óskum Binga hins besta og vonum að hann nái sér sem fyrst.


Athugasemdir