Seldi Grindvíkingum dauða runna
“Sagði að þeir myndu laufgast fljótlega” segir eitt fórnarlambið.
Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur til níu mánaða fangelsisvistar fyrir svik. Maðurinn þóttist vera lærður garðyrkjumaður og seldi 32 húseigendum í Grindavík runna í garða þeirra sumarið 2007. Þegar tvö ár voru liðið frá sölunni og engin lauf höfðu komið á runnana áttuðu kaupendur sig á svikunum og kærðu manninn.
“Hann kom vel fyrir í alla staði og engan grunaði neitt” sagði einn hinna svekktu garðeigenda í viðtali við Grefilinn. “Svo mætti hann með runnasprekin, stakk þeim í moldina og sagði okkur að vökva reglulega. Mér fundust þessir runnar strax hálf líflausir, en hann fullyrti að þeir væru bara í sjokki eftir flutninginn og myndu laufgast fljótlega. Svo gerðist bara nákvæmlega ekki neitt.”
Neitaði sök
Fyrir dómi fullyrti hinn ákærði að ástæðan fyrir því að runnarnir hefðu drepist væri sú að garðeigendur hefðu gleymt að vökva þá og gefa þeim næringu auk þess sem aðstæður fyrir runnaræktun í Grindavík væru afleitar, en á því gæti hann enga ábyrgð borið.
Á þetta féllst dómarinn ekki enda kom fram í áliti garðyrkjustjóra ríkisins að runnarnir hefðu aldrei átt möguleika á að laufgast þar sem þeir voru dauðir þegar þeim var stungið í moldina. Þess utan voru hinir meintu runnar bara dauð trjásprek sem maðurinn hafði týnt í Hljómskálagarðinum og sett í söluumbúðir.
Fyrir utan fangelsisdóminn var maðurinn dæmdur til greiðslu alls sakakostnaðar.


Athugasemdir