May 272011
Miðar fást ekki endurgreiddir
Eagles-tónleikunum sem fara áttu fram þann 9. júní hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Í ljós hefur komið að hinir öldnu meðlimir hljómsveitarinnar eru búnir að gleyma hvernig á að spila lögin sem þeir ætluðu að flytja.
Góðu fréttirnar eru þær að í stað Eagles hafa þeir Steinar og Stulli tekið að sér að koma fram, taka nokkur lög og fara með gamanmál. Því þarf ekki að endurgreiða neinum neitt og allir geta mætt enda eru atriði þeirra Steinars og Stulla síst lakari en lög hinnar gömlu kántrírokksveitar frá innanverðum Bandaríkjunum.


Athugasemdir