Tíðindi úr stjórnmálaheiminum
Langbesti flokkurinn
“Svo er Sigmundur Davíð svo sætur”, segir Einar Áskell
Einar Áskell gekk í dag til liðs við Framsóknarflokkinn og ætlar sér þar stóra hluti að eigin sögn.
“Ég ákvað að ganga í Framsóknarflokkinn vegna þess að afi minn átti einu sinni heima í sveit og sagði að það væri hvergi betra að vera. Svo finnst mér dýr líka skemmtileg og Sigmundur Davíð ekkert smá sætur.”
Hver verða helstu baráttumál þín Einar Áskell?
“Ég er ekki alveg viss. Líklega almenn leiðrétting á skuldum pylsusala, skynsamleg mjólkurstefna, framsæknar lausnir í málum sjómanna í landi, Evrópumálning og svo auðvitað allt hitt sem stendur í inngöngusamningnum.”
Við hér á Greflinum óskum bæði Framsóknarflokknum og þjóðinni allri til hamingju með að fá Einar Áskel inn í þjóðmálin. Ekki veitir af.


Athugasemdir