Hurð skellur nærri hælum við Grímsvötn

Erlendur ferðamaður hætt kominn

Skorað á ferðamenn að fara varlega við eldstöðvarnar

Geir Brekkan með ferðamanninn sem hann bjargaði í Grímsvötnum fyrir stundu.

Það fór betur en á horfðist þegar erlendum ferðamanni var bjargað naumlega frá því að detta ofan í Grímsvötn nú síðdegis þar sem hann hafði látið freistast til að kíkja ofan í gíginn sjálfan. Slíkt er að sjálfsögðu mikið hættuspil og ef ekki hefði komið til snarræðis Geirs Brekkan, slökkviliðsstjóra á Kirkjubæjarklaustri hefði vart þurft að spyrja að leikslokum.

Að sögn Geirs hefur þetta atvik tafið nokkuð slökkvistarfið í Grímsvötnum og vill hann brýna fyrir ferðafólki að fara ekki of nálægt eldgosinu á meðan verið er að slökkva í því. Slíkt sé hættuspil auk þess sem það truflar slökkvistarfið verulega að þurfa að bjarga fólki frá því að detta ofan í gíginn.

Annars gengur slökkvistarfið bara vel að sögn Geirs sem býst við að því ljúki um tíuleytið í kvöld.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku