Mar 122011
Ertu eitthvað niðurdregin(n)? Vantar í þig allan kjark?
Láttu þá …
Hugarherðirinn
herða upp hug þinn!
- Herðir upp hugann á 10 til 20 mínútum*
- Kjarkbætir fylgir með
- Innbyggð Roluvörn með rakamæli
- Fífldirfskubremsur
- Hægt að tengja við Hughreistara
og fleira og fleira og fleira og fleira …

Líttu á verðið:
Aðeins kr. 990 **
Tilboð – Tilboð – Tilboð
Fyrstu 100 sem kaupa Hugarherði
fá Mannbætir með á 50% afslætti.

* Fer eftir því hversu niðurdregin(n) þú ert.
** Þúsund.

Já, góðan daginn … ég ætla að fá einn svona. Er hægt að fá hann sendann án þess að nafn míns sé getið utan á pakkanum? Sé svo þá vil ég hafa það þannig.
Steingrímur.
Já, nei, nei, við stundum ekkert leynimakk hér á Greflinum. Þú verður bara að kannast við gjörðir þínar góurinn eins og aðrir.