Þykir ekki nógu kvenleg

„Ekkert annað en fordómar“, segir Kamella Haukdal.

"Ekkert nema fordómar", segir Kamella.

Kamella Haukdal, kjólameistari, segir farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við femínistafélagið.

„Ég sótti um inngöngu í femínistafélagið í haust en fékk svo bara bréf þar sem umsókninni var hafnað”, sagði Kamella í samtali við Grefilinn í morgun.

Voru engar skýringar gefnar á því?

„Nei, en ég ákvað að hringja í Eyju M. Brynjars og þá sagði hún að umsókninni hefði verið hafnað þar sem stjórn femínistafélagsins teldi mig ekki nógu kvenlega í útliti.”

„Þetta er alveg rétt”, sagði Eyja í samtali við Grefilinn. „Það er algjört lágmark að fólk sem ætlar að vera í femínistafélaginu líti sómasamlega út. Svona hörmung eins og þessi Kamella verður bara að finna sér annað félag til að ganga í.”

En er þetta ekki dálítið fordómafull afstaða?

„Fordómafull? Líttu á þetta gerpi. Myndir þú vilja vera með þessu í félagi?”

Já, en …

„Það er ekkert enn hér. Þetta er augljóst og alls engir fordómar að baki. Miklu frekar bara almenn sjálfsvirðing myndi ég segja.”

Þess ber að geta að Kamellu hefur verið boðið að ganga í Kvenfélag Hafnarfjarðar, en það liggur ekki fyrir hvort hún taki boðinu.

  One Response to “Fær ekki inngöngu í femínistafélagið”

  1. Tilviljun? Ég trúi ekki á tilviljanir.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku