ERTU að færa? VILTU færa? ÞARFTU að færa?

Láttu þá FÆRARANN færa það fyrir þig!

FÆRARINN
Færir það fyrir þig

Sparar tíma, orku, og einbeitingu

Samvinna Japana, Kínverja og Bandaríkjanna á sviði nýsköpunar hefur nú getið af sér eitthvert mesta tækniundur sögunnar, Færarann.

Færarinn er algjörlega sjálfvirkur að öðru leyti en því að í hann þarf að kaupa batterí annað slagið. Sé það gert færir hann hvað sem er fyrir þig og sparar þér um leið bæði tíma, orku og einbeitingu.

Hugsaðu þér næst þegar þú þarft að færa eitthvað hve yndislegt það hefði verið að eiga sjálfvirka Færarann því hann væri sennilega búinn að færa það fyrir þig.

TVÆR TÝPUR
Standard og bingó

Verð frá aðeins 100.001.-

Eingöngu selt gegn staðgreiðslu

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku