Frá lögreglunni í Garðabæ:

Sást þú hvað gerðist? Vitni óskast.

Ljósbrún padda fannst látin fyrir utan IKEA-verslunina í Garðabæ kl. 11:15 í morgun.

Þar sem paddan, sem grunur leikur á að sé af erlendum uppruna, virðist hafa verið ein á ferð og án skilríkja eða nokkurs sem gæti gefið til kynna hver hún er (var) biður lögreglan alla sem geta gefið upplýsingar um málið að gefa sig fram hið fyrsta.

Tekið skal fram að ekki er talið að um glæpsamlegt athæfi hafi verið að ræða enda bar vettvangurinn enginn merki um átök sem gætu hafa leitt til dauða pöddunar.

Þeir sem telja sig kannast við pödduna á myndinni eru
beðnir að gefa sig fram hið fyrsta við lögregluna í Garðabæ
.

————–

Vinsamlega athugið:

Búið er að bera kennsl á líkið sem fannst fyrir utan Ikea-verslunina í Garðabæ og sagt var frá hér að ofan.

Sú látna hét Anna Lirvakova, til heimilis að Ystatúni 15, Kópavogi.

Anna var af ungversku bergi brotin og einhleyp, en lætur eftir sig 620 uppkomnar pöddur sem allar eru búsettar hérlendis og eru allar á lífi utan tvær sem krömdust til bana á Laugaveginum síðastliðið sumar.

Lögreglan í Garðabæ vill koma á framfæri þökkum til allra sem veittu aðstoð.

————

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku