Grefillinn

Barlómur Hannesson getur ekki hætt að gráta
Grætur frá morgni til kvölds

Vorkennir sér svo mikið

Barlómur verður í ítarlegu viðtali í helgarblaði DV sem kemur út á morgun.

Barlómur Hannesson húsasmíðameistari getur ekki á sér heilum tekið þessa dagana og grætur stanslaust frá morgni til kvölds.

Af hverju ertu að gráta?

„Af því ég svo bágt.“

En er þá ekki bara að bíta á jaxlinn?

„Ég hef reynt það en það virkar ekki því ég vorkenni mér svo mikið.“

Þess ber að geta að Barlómur verður í ítarlegu viðtali í helgarblaði DV sem kemur út á morgun.

Alvarlegt ofbeldismál á Eskifirði
Leggur sjálfan sig í einelti

„Getur ekki hætt“, segir fórnarlambið

Úrillur: „Get þetta ekki lengur.“

Úrillur Allmann, rafvirki, hefur að undanförnu upplifað svæsið ofbeldi af hendi síns innri manns sem hefur svo að segja lagt líf hans í rúst.

„Þetta byrjaði allt þegar bankarnir fóru á hausinn“, sagði Úrillur í samtali við Grefilinn í gær. „Fyrst hóf ég að ásaka mig og bölva mér í hljóði, síðan skammaðist ég stöðugt út í mig upphátt. Svo fór ég að rekast á veggi hvar sem ég kom. Ég hef gefið sjálfum mér ófá glóðaraugu þegar ég hef kippt að mér höndunum. Svo hrekk ég stöðugt í kút og baklás. Steininn tók þó úr þegar ég gat ekki lengur verið með sjálfum mér í vinnu og var rekinn.“

Hefurðu kært málið til lögreglunnar?

„Já, ég gerði það en þeir vilja ekkert gera. Samt er ég allur blár og marinn eftir mig og með vottorð upp á það.“

Hvað hyggstu gera?

„Ég veit það ekki. Eins og staðan er þá leggur minn innri maður mig í stanslaust einelti og getur ekki hætt. Auðvitað kemur bara að því að maður þolir þetta ofbeldi ekki lengur.“

Þess má geta að Úrillur verður í innilegu viðtali við DV á morgun þar sem hann segir alla söguna.

Halldóra risin upp frá dauðum
„Gaman að fá annað tækifæri“

Fór beint í fjölskylduboð

Halldóra Hesfjörð: Ánægð með að vera upprisin.

Halldóra Hestfjörð sem lést árið 1922 reis upp frá dauðum nú síðdegis og er óhætt að segja að afkomendur hennar hafi rekið upp stór augu þegar hún mætti í lambalærið í kvöld.

„Já, það er auðvitað dálítið neyðarlegt að mæta svona ótilhöfð en þegar ég var búin að fara í bað hjá dótturdóttursyni mínum þá fannst mér ég bara vera farin að líta þokkalega út, að minnsta kosti betur en þegar ég kom upp úr gröfinni.“

Hverju þakkar þú upprisuna?

„Ég þakka það fyrst og fremst því að ég hef aldrei reykt.“

Og hvað tekur svo við eftir páskana?

„Ja, ætli maður byrji ekki á því að skoða sig um. Það hefur svo margt breyst síðan síðast. Svo þarf ég auðvitað að fá mér vinnu.“

Samkvæmt heimildum Grefilsins er Halldóra ekki sú eina sem reis upp frá dauðum í dag og hafa borist fréttir af að minnsta kosti tveimur öðrum tilfellum á Norðurlandi og einu á Austfjörðum.

Þess má einnig geta að Halldóra verður í ítarlegu viðtali í DV um næstu helgi.

Davíð Oddsson öfugur
Vaknaði svona í morgun

Reiknar með að verða réttur í kvöld

Davíð Oddsson öfugur: Jafnar sig í kvöld.

Sá undarlegi atburður gerðist í morgun að Davíð Oddsson vaknaði öfugur og er nú á hvolfi. Enn sem komið er hefur engin skýring fengist á hvað veldur þessum viðsnúningi.

„Já, ég vaknaði bara öfugur í morgun og það hefur allt verið meira og minna á hvolfi hjá mér í dag“, sagði Davíð í drottningaviðtali við Grefilinn nú seinnipartinn þar sem hann var staddur á slysadeild Sjálfstæðisflokksins.

Háir þetta þér eitthvað?

„Nei, ekki svo mikið núna kannski, en fyrst í morgun fannst mér ég sjá dálítið vit í stefnu Samfylkingarinnar. Strax á eftir var ég svo orðinn fylgjandi kvótafrumvarpinu. En þetta var bara út af þessu og leið hjá upp úr hádegi.“

Heldurðu að þú jafnir þig þá fljótlega?

„Jú, ég er allur að koma til núna, er enn dálítið skakkur en verð vonandi orðinn réttur í kvöld.“

Það skal tekið fram að þótt ekki sé enn vitað hvað olli þessum undarlega viðsnúningi hjá Davíð er ástand hans ekki talið smitandi.

Grátkór útgerðarmanna með tónleika í kvöld
Sama efnisskráin og síðast

„Allir velkomnir“, segir Vígreifur Sigmarsson, sægreifi

Grátkór útgerðarmanna heldur sína árlegu páskatónleika við færibandið í Vestmannaeyjum í kvöld og verður tónleikunum lýst beint á síðum Morgunblaðsins og endurvarpinu á Eyjunni.

Verður boðið upp á einhver ný lög?

„Nei, við erum með sömu efnisskrána og undanfarin ár, lagið ‘Fiskinn minn, nammi nammi namm’, í ýmsum útgáfum, þar á meðal Barlómsútgáfunni vinsælu og svo sérstakri Auswitch-útgáfu sem er sérstaklega samin fyrir þessa tónleika“, segir stjórnandi kórsins, Vígreifur Sigmarsson, sægreifi.

En er fólk ekki búið að fá alveg nóg af því að heyra alltaf sama lagið þótt útgáfurnar séu mismunandi?

„Nei, lagið er sígilt og auk þess eina lagið sem kórinn kann.“

Þess má geta fyrir þá sem komast ekki á tónleikana í kvöld að þeir eru enn fáanlegir á upphaflegu vinylplötunum og geta þeir sem kaupa sér eintak leigt sér aðgang að plötuspilara Alþingis.

Skelfing í Skipholtinu
„Munum ekki hvar við földum þau“

segja foreldrarnir.

Guðrún og Geir: Engin páskaegg í ár.

Gríðarlegt uppnám er nú hjá fjögurra manna fjölskyldu í Skipholtinu sem hefur leitað síðan í morgun að tveimur páskaeggjum sem foreldrarnir földu í gær en muna ekki lengur hvar. Hafa börnin á heimilinu því ekkert páskaegg fengið í dag.

„Við höfum leitað alls staðar“, segir faðirinn, „uppi, niðri, á bak við allt, undir rúmunum, ofan í skúffum, í fatahenginu, ruslinu og bara alls staðar en við finnum þau ekki.“

Númer hvað voru þau?

„Þetta voru páskaegg númer 4 minnir mig og annað með bleikum unga.“

Eruð þið búin að leita í garðinum?

„Við erum ekki með garð.“

Reiknað er með að leitin standi eitthvað áfram, jafnvel fram í myrkur, og eru þeir sem vilja aðstoða og hafa ekkert betra að gera beðnir að drífa sig niður í Skipholt, helst með vasaljós.

Vantrúarrúnkið á morgun
Vantrú með hóprúnk á Austurvelli

„Er hægt að kalla þetta eitthvað annað?“, spyr Matthías Ásgeirsson yfirrúnkari

Hið árlega hóprúnk Vantrúar fer fram á Austurvellli á morgun fyrir framan styttuna af Jóni Sigurðssyni. Tilgangurinn er að mótmæla helgidagalöggjöf Íslendinga.

„Já, við erum að mótmæla trúarorgíum og trúarrúnki kristinna manna. Okkur í Vantrú er bannað að trufla þetta trúarrúnk með okkar rúnki en svo mega trúarrúnkarar trufla okkur með kirkjuklukkum til að auglýsa sitt rúnk“, segir Matthías Ásgeirsson, eigandi Vantrúar. „Þessu viljum við mótmæla.“

En er það baráttu Vantrúar til framdráttar að kalla trúariðkun rúnk og rúnka sér á móti?

„Er það eitthvað óskaplega óviðeigandi? Er rúnk ekki bara það að gera vel við sjálfan sig?“

Ja, væri ekki hægt að nota eitthvað annað en ‘rúnk’ til að koma mótmælunum á framfæri?

„Af hverju? Hvenær varð ‘rúnk’ uppnefni? Hvað er svona slæmt við orðið ‘rúnk’? Er hægt að kalla þetta eitthvað annað? Annars skiptir engu hvað við gerum, það móðgast allir hvort sem er. Við í Vantrú erum hins vegar stolt af okkar aðferðum og orðanotkun og erum orðin þreytt á trúfólki sem rúnkar sér í kirkjum landsins og móðgast svo þegar við rúnkum okkur.“

Þess má geta að hóprúnk Vantrúar hefst stundvíslega klukkan 11 og verða páskaegg í verðlaun fyrir besta rúnkið. Nánari upplýsingar verður að finna á bloggi Matthíasar.

Vondu kókópöffspakkarnir fundnir
Földu sig á salerninu hjá Jóni

„Þráuðust við“, segir heilbrigðisfulltrúinn sem fann þá

Vondir kókópöffspakkar. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint.

Vondu  kókópöffspakkarnir sem komust ólöglega inn í landið á mánudag og leitað hefur verið að eru fundnir. Starfsmaður heilbrigðiseftirlitsins kom að þeim á bak við salernishurðina á heimili Jóns Geralds Sullenberger á tíunda tímanum í morgun, en Jón Gerald er talinn hafa aðstoðað þá á flóttanum.

Gáfust þeir strax upp?

„Nei, þeir þráuðust við, þóttust vera seríóspakkar“, sagði Simmi Sívertsen, heilbrigðisfulltrúi í samtali við Grefilinn í morgun.

Er málinu þar með lokið?

„Þessu máli er lokið já, en baráttan er samt rétt að byrja.“

Þess ber að geta að eftirlit hefur nú verið hert verulega í gámahöfnum landsins svo fleiri vondir kókópöffspakkar komist ekki inn í landið á ólöglegan hátt.

Englandsmeistarar Leeds með 17 stiga forystu
Lögðu Liverpool 0-8 á Anfield.

Titillinn svo að segja í höfn, fjórða árið í röð

Englandsmeistarar Leeds verða vart stöðvaðir úr þessu eftir að þegar þeir rótburstuðu botnlið Liverpool á Anfield með átta mörkum gegn engu í gærkvöldi. Leeds er nú komið með 17 stiga forskot í úrvalsdeildinni þegar 7 umferðir eru eftir og er auk þess með 88 mörk í plús, 59 mörkum meira en Teleford sem er í öðru sæti deildarinnar.

Leikurinn í gær var einstefna frá upphafi til enda og hefðu leikmenn Leeds hæglega getað skorað 8 mörk í viðbót, bara í fyrri hálfleik, svo lélegir voru Liverpool-menn, en Liverpool er sem kunnugt er löngu fallið ásamt Chelsea og Manchester United sem bæði töpuðu einnig sínum leikjum í gær og eru með 4 stig hvort félag, 3 stigum fyrir ofan Liverpool.

Þar með er fjórði Englandsmeistaratitill Leeds í röð nokkurn veginn kominn í hús, en liðið hefur sennilega aldrei verið betra, hefur ekki tapað deildarleik í þrjú ár auk þess að vera bæði bikarmeistari og Evrópumeistari.

Lausn á fjárhagsvanda heimilanna
Ertu orðin(n) leið(ur) á peningaskortinum?

Sérðu ekki fram á að endar nái saman?

Sé svo þá er

PENINGAPLOKKARINN

eitthvað fyrir þig!

Hvað segja ánægðir kaupendur?

“Ég var orðin hálfblankur þegar ég ákvað að fá mér peningaplokkarann.

Síðan þá hefur mig ekki skort peninga.” - Sigurður Einarsson.

“Ég mæli heilshugar með peningaplokkaranum fyrir alla sem

vantar peninga vafningslaust.” - Bjarni Benediktsson.

“Ég skil ekki hvað fólk er að kvarta yfir peningaskorti þegar það getur

bara fengið sér peningaplokkarann.” - Jóhanna Sigurðardóttir.

“Peningaplokkarinn gerði mér kleift að eignast allt sem mig langaði í.”

- Ólafur Ólafsson.

“Ég var orðinn úrkula vonar um að geta borgað Icesave-skuldirnar

þegar Jóhanna benti mér á peningaplokkarann. Nú er ég búinn að

borga Icesave upp í topp og gat auk þess keypt mér hornsófa.”

- Steingrímur J. Sigfússon.

Verð aðeins kr. 4.999,-

TILBOÐ – TILBOÐ – TILBOÐ

Pantaðu fimm eða fleiri Peningaplokkara fyrir

kl. 20:00 í kvöld og fáðu límrúllu með FRÍTT.

Harmleikur á hafinu
Að minnsta kosti þrír látnir

Margir stórslasaðir

Frá árásinni: Jón Karfi fyrir miðri mynd.

Æðiskast virðist hafa runnið á skipverja á bátnum Brynjólfi í nótt þegar þeir hófu fyrirvaralausa árás á karfatorfu sem var saman komin til að fagna þrettán þúsund ára afmæli karfastofnsins við Ísland.

„Þetta var skelfilegt“, segir Jón Karfi Jónsson sem tókst að sleppa lifandi frá hildarleiknum.

Geturðu lýst atburðarásinni?

„Við vorum þarna að synda öll saman þegar þrengdist skyndilega að okkur og áður en ég vissi af gat ég ekki hreyft mig. Ég missti meðvitund en þegar ég rankaði við mér lá ég á einhverju ísköldu járni ásamt öllum hópnum og náði ekki andanum. Þá sé ég hvar Lóló systir mín er skorin á háls af manni sem ég hef aldrei séð áður. Ég reyndi að sprikla mig til hennar en rann þá af járninu og var allt í einu kominn aftur í sjóinn.“

Hvað heldurðu að manninum hafi gengið til?

„Ég veit það ekki og veit ekki til þess að Lóló hafi nokkurn tíma gert honum neitt. En ég mun aldrei gleyma honum og glampanum í augum hans.“

Lögreglan verst enn sem komið er allra frétta af málinu en staðfestir að margir karfar séu stórslasaðir og að minnsta kosti þrír látnir.

Ekki er hægt að greina frá nöfnum hinna látnu að svo stöddu.

Páskaplatan í ár …

Svona verða páskaeggin til …
… eggi?

Finnur Ingólfs á tíuþúsundkrónaseðlinum
Fær prósentur af notkun

„Bara gott mál“, segir Már.

Seðlabankastjórn Íslands hefur ákveðið að Finnur Ingólfsson verði á tíuþúsundkrónaseðlinum sem nú er að fara í prentun.

„Já, við ákváðum þetta í morgun“, sagði Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri, í samtali við Grefillinn nú eftir hádegi. „Finnur Ingólfsson mun prýða tíuþúsundkrónaseðilinn sem kemur í bankana í haust.“

Hvernig kom þetta til?

Það kom í ljós í gær að við áttum ekki fyrir útgáfunni og Finnur var svo vænn að bjóðast til að borga bæði hönnun og prentun. Okkur þótti því sjálfsagt og sanngjarnt að hafa hann á seðlinum í þakklætisskyni.

Þannig að íslenska þjóðin stórgræðir á þessu?

„Já, og Finnur fær auðvitað hóflegar höfundaréttargreiðslur í hvert skipti sem seðillinn er notaður þannig að segja má að allir græði og það er bara gott mál.“

Þess má geta að Finnur verður einnig á fimmtíuþúsundkrónaseðlinum sem kemur út á næsta ári.

Sandkassar
Þingmenn – Þingmenn

Sandkassarnir komnir

Sandur, skóflur og fötur fylgja

Verð aðeins 18,999.-

Varist eftirlíkingar