May 202011
Kettlingar eru mjög skemmtileg dýr.
Þegar kettlingar koma úr eggjunum þá sjá þeir ekkert, bara allt svart. En svo læra þeir að sjá og ganga. Þegar það er búið fara þeir að leika sér.
Kettlingar byrja á kái eins og krókódílar, kakkalakkar, kál og kóngulær, en þær eru með átta fóta en kettlingar bara tvo.
Kettlingar eru loðnir og ef maður ýtir á þá tísta þeir ef maður ýtir fast. Það heitir mjálm.
Sumir kettlingar eru gulir en aðrir bara svartir og hvítir. Svo eru líka til röndóttir.
Kettlingar geta orðið mjög gamlir og heita þá Kisur.
Kettlingurinn minn heitir Unni. Kettlingar sofa uppi í skáp og stundum í sófum.
Og svo veit ég ekki meira um kettlinga.
- Unnur Brá, 6 ára.


Athugasemdir