Ókeypis kótilettur í Múlakaffi í dag
Allir Íslendingar velkomnir segir eigandinn.
Í dag, föstudaginn 1. apríl, ætlar Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, að bjóða öllum Íslendingum í ókeypis kótilettur með öllu tilheyrandi.
“Mig hefur bara alltaf langað til að gera þetta,” sagði Jóhannes þegar blaðamaður Grefilsins hringdi í hann til að forvitnast um þessa einstöku gjafmildi. “Það eru viðskiptavinirnir sem hafa haldið þessu fyrirtæki á floti í öll þessi ár og því fannst mér tími til kominn að gefa eitthvað til baka.”
“En heldurðu ekki að þetta verði ansi margar kótilettur sem þú þarft að gefa?”
“Ah … nei, nei … það halda örugglega flestir að þetta sé aprílgabb þannig að ég býst ekki við mörgum”, sagði Jóhannes.
Þess ber að geta að með kótilettunum sem verða ókeypis í Múlakaffi í allan dag verður boðið upp á Ora-grænar baunir, Ora-gular baunir, Ora-rauðkál, Ora-rauðbeður og eitthvað fleira.
ORA – gerir góða kótilettu betri.


Athugasemdir