Gríðarlega flott gos
Gosið sem nú er nýhafið í Grímsvötnum sést einstaklega vel frá Grefilsgerði og er það mál manna að aldrei áður hafi eldgos sést jafnvel frá jafnsléttu og nú.
Meðfylgjandi mynd náðist af gosinu glæsilega núna rétt áðan en þessa sýn geta allir litið eigin augum sem skreppa austur fyrir fjall, a.m.k. á meðan veðrið er svona gott eins og það er.
Við munum að sjálfsögðu birta fleiri myndir frá gosinu um leið og þær koma úr framköllun.
—


Athugasemdir