„Fyrir neðan allar hellur“

Segir Steik Ingimarsdóttir, fyrrverandi formaður femínistafélagsins.

Hlöðver Daum, formaður femínistafélags austurlands og innsveita.

Frétt Grefilsins af kaupum Kínverjannna í Hvalfirði hefur vakið hörð viðbrögð á sunnanverðu landinu, ekki síst hjá femínistum sem vilja meina að fréttin hafi verið afar dónaleg, illa unnin og sneisafull af fordómum. Hefur félagið kært Grefilinn til Siðanefndar femínistafélagsins.

„Það gengur bara ekki að lesendum sé boðið upp á svona fordóma“, sagði Steik í tölvupóstsviðtali við Grefilinn núna síðdegis.

Hvaða fordóma, nákvæmlega, áttu við?

Ja, fréttin er alveg greinilega skrifuð og framsett til þess eins að gera lítið úr konum og fólki sem ann jafnrétti og félagslegum jöfnuði. Fréttagildið sem slíkt er nánast ekkert þar sem þetta var allt búið að koma fram áður, en fréttin samt notuð markvisst til að hafa áhrif á undirmeðvitund lesenda og snúa þeim gegn konum. Þetta er viðbjóðslegt og til skammar fyrir ritstjórn og aðstandendur.

Telurður fréttina hafa skaðað orðspor Íslands?

„Engin spurning með það. Fréttin hefur þegar birst í dönsku femínistatíðindunum og við erum að vinna í því að fá hana birta á vefsvæði samtakanna auk þess sem blaðburðafólk New York Times hefur þegar líst yfir áhuga á að bera hana út.” sagði Steik.

Samkvæmt bókun Siðanefndarinnar femínistafélagsins verður málið tekið fyrir fljótlega, eða eftir að búið er að funda um hana í Jafnréttis- og kvenfyrirlitningadeild femínistafélagsins.

Grefillinn stendur við fréttina.


 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku