„Svona gera menn ekki“

Segja Pétur og Páll, formenn kópípeistsamtakanna.

Pétur og Páll.

Frétt Grefilsins af kaupum Kínversku aðilana á utanverðum Hvalfirði hefur vakið hörð viðbrögð kópípeistfélaga, ekki síst á Vestfjörðum. Í fréttatilkynningu sem kópípeistfélagið sendi frá sér nú fyrir stundu segir að fréttin hafi verið afar illa kópípeistuð upp úr öðrum vefmiðlum og þess ekki gætt að shifta orðalagi nægilega vel eða mikið.

„Það gengur bara ekki að leitarvélum sé boðið upp á svona vinnubrögð eins og þarna hafa verið viðhöfð“, sögðu þeir Pétur og Páll á blaðamannafundi núna klukkan 16:00.

Hvaða vinnubrögð, nákvæmlega, eigiði við?

Ja, fréttin er alveg greinilega kópípeistuð og framsett án tilhlýðlegra viðmótsbreytinga og orðalagsáherslna. Hún er garfinn og heiðarhvolf sem er andstætt reglum alþjóðlega kópípeistfélagsins. Þess utan má sjá greinileg merki um selskapshátt í henni sem er refsivert athæfi í öllum löndum.

Teljið þið fréttina verða kópípeistaða?

„Engin spurning hvað það varðar. Fréttin hefur þegar verið kópípeistuð í norðurnorskum vefmiðlum og við erum að vinna í því að fá hana kópípeistaða á vefsvæði samtakanna auk þess sem fréttadeild Los Angeles-tíðinda í Mexíkó er þegar búin að láta þýða hana á kaþólsku.” sögðu þeir Pétur og Páll.

Samkvæmt bókun Siðanefndar alþjóða kópípeistfélagsins verður fréttin tekin fyrir fljótlega, eða eftir að búið er að dreifa henni á félagsmenn.

Grefillinn stendur við fréttina.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku