„Til skammar fyrir samfélagið“

Segir Svíngeir Þormóðsson, málfarsráðunautur.

Ráðunaut: Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint.

Frétt Grefilsins af kaupum Kínverjans í Kvalfirði hefur vakið hörð viðbrögð í þjóðfélaginu, ekki síst hjá málfræðingum sem vilja meina að fréttin hafi verið málfræðilega röng, illa unnin og ekki rétt stafsett. Hefur félagið kært Grefilinn til Siðanefndar málfræðiinga.

„Það gengur bara ekki að lesendum sé boðið upp á svona vinnubrögð“, sagði Svíngeir í netspjalli við Grefilinn nú eftir hádegi.

Hvaða vinnubrögð, nákvæmlega áttu við?

Ja, það er til dæmis allt morandi í stafsetninga- og málfræðivillum í fréttinni, meira segja í því allra heilagasta, fyrirsögninni. Slíkt er þjóðarskömm og ekki sæmandi fyrir neinn miðil sem vill láta taka sig alvarlega.

En hvað með …

„Ekkert enn neitt, og hvað með, þetta er til hábölvaðrar skammar,” sagði Svíngeir.

Auðvitað getur svonur alltaf gerst,” sagði Ludmila Krakakowa, forstöðukona stafsetningar- og málfræðisviðs prófarkadeildar Grefilsins. “En við þarf bara að læra meira á þessu og reyna að gera betra næst

Samkvæmt bókun Siðanefndarinnar málfræðifélagsins verður málið tekið fyrir fljótlega, eða eftir að búið er að afla frekari gagna frá Finna Blöndal, málvísindamanni sem kemur ekki heim frá Kanarí fyrr en þann tólfta..

Grefillinn stendur við fréttina.


 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku