„Er til skammar í þjóðfélaginu“

Segir Mugga Þorsteinsdóttir
frænka Gunnars í Gunnarsmajónesi.

Sundlaugin í Suður-Múlasýslu.

Frétt Grefilsins af kaupum Kínverjans á Hvalfirði hefur vakið hörð viðbrögð í samfélaginu, ekki síst hjá Félagi fréttamanna sem vilja meina að fréttin hafi verið villandi, illa unnin og villandi. Hefur félagið kært Grefilinn til Siðanefndar Blaðamannafélagsins.

„Það gengur bara ekki að lesendum sé boðið upp á svona vinnubrögð“, sagði Mugga í netspjalli við Grefilinn nú undir hádegi.

Hvaða vinnubrögð, nákvæmlega áttu við?

Ja, því er til dæmis haldið fram í fréttinni að boðið hafi verið upp á skonsur fyrir norðan sem er auðvitað alrangt. Þess utan felast beinar og algjörlega rakalausar aðdróttanir í því að tengja það sem kvenréttindakonur í Suður-Múlasýslu eru að dunda sér við við við við kaup Kínverjans í Hvalfirði. Þarna er vísvitandi verið að blekkja fólk, það sjá allir sem lesa fréttina.

En ef allir sjá það, er það þá nokkur blekking?

Auðvitað er það ekkert nema blekking að halda svona fram í virtum vefmiðli sem hingað til hefur verið þekktur fyrir vönduð vinnubrögð og vill láta taka sig alvarlega. Þetta situr eftir í fólki. Sumir eru farnir að halda að það séu eintómir Kínverjar í kvenréttindafélaginu.

Samkvæmt bókun Siðanefndarinnar verður málið tekið fyrir fljótlega, eða eftir að búið er að afla frekari gagna frá Dalvík.

Grefillinn stendur við fréttina.


 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku