Fyrsti alvöru stjórnmálaflokkur Íslandssögunnar

Já, það hlaut að koma að því.

Auðvitað er maður orðinn hundleiður á þessu ástandi hér á landi.

Það bara gengur ekki að það sé enginn í brúnni og við stýrið á þjóðarskútunni … ég meina … einhver sem allir geta treyst.

Eða a.m.k. sæst á að fái að stýra rétt á meðan siglt er út úr brimgarðinum.

Þess vegna hef ég, Grefillinn sjálfur, ákveðið að stofna stjórnmálaflokk.

Flokkurinn á að heita Stjórnmálaflokkur Reykjavíkur og nágrennis. “Nágrennis” þýðir auðvitað allt landið enda er það allt meira og minna í nágrenni Reykjavíkur.

Stefnan er ekki alveg komin á hreint en ljóst er að hún verður einhver önnur en sú sem nú er farin.

Nú er bara að hanna lógó og svona og byrja að safna kosningastyrkjum og opna skrifstofu og fá sér síma.

Allir sem vilja taka sæti í Stjórnmálaflokki Reykjavíkur og nágrennis eru vinsamlega beðnir að gefa sig fram og segja hvað þeir eiga mikinn pening.

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku