Grefilsaðstoð – Fyrir þá sem minna mega sín.
Eins og allir vita þá er Grefillinn sjálfur einkar bóngóður Grefill og leggur sig ávallt fram um að hjálpa samborgurum sínum sem mest hann má með hvað sem fyrir liggur.
Þess vegna hefur hann heimilað starfsfólki Grefilsins að birta hér á síðunni ýmsar hjálparbeiðnir sem berast á skrifstofuna, algjörlega að kostnaðarlausu fyrir beiðandann.
Með þessu vill Grefillinn leggja sitt af mörkum til að gera samfélagið betra og heiminn að betri stað.
Þú mátt vera viss um Grefillinn elskar þig og vill allt fyrir þig gera af einstökum drengskap og heilindum.
Með kveðju,
- Göltur Smári, aðstoðarundirmaður auglýsingadeildar.

Athugasemdir