GrefilsKína – Nafli alheimsins

 

Eins og allir hljóta að vita þá ákvað ég, Grefillinn sjálfur, að flytjast tímabundnum búferlum frá föðurlandinu og freista gæfunnar eins og þeir gera í ævintýrunum.

Borgin Guilin er merkt með rauðum punkti, norðvestur af Hong Kong (smellið til að stækka myndina).

Ég hélt því út á Keflavíkurflugvöll morgun einn í október 2011 með helminginn af hafurtaski mínu og endaði af einhverjum ástæðum í borginni Guilin í Guangxi-héraði í Kínaveldi. Komst ég fljótlega að því að þetta er ljómandi skemmtileg borg á ljómandi skemmtilegu svæði. Tölur eru nokkuð á reiki um íbúafjölda hér en samkvæmt Wikipediu þá eru þeir um 700 þúsund og einn, með mér.

Þar sem ég er glænýr á þessum slóðum og eignaðist ekki alls fyrir löngu litla en bráðskemmtilega Sony-myndavél þá finnst mér alveg tilvalið að misnota nota þessa síðu mína, eða a.m.k. hluta hennar, til að gera hinum nýja dvalarstað mínum og fólkinu sem býr hér einhver skil í máli og þeim myndum sem ég afla mér í mínum daglegu heilsubótargöngum um nágrennið.

Ég er líka að vona að með þessu uppátæki öðlist ég virðingu og vinsældir kínversku alþýðunnar sem bugti sig og beygi eftirleiðis fyrir mér og bjóði mér í mat  í virðingar- og þakklætisskyni.

Fylgist með frá byrjun!

- Grefillinn sjálfur.

Smelltu hér fyrir nýjustu Kínapóstana.

——————-

© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku