Grefilskennsla – Þú kannt mikið ef þú kannt að læra.

 

Um hvað snýst Grefilskennslan?

Góð spurning. Grefilskennslan snýst að öllu leyti um að hjálpa fólki við að nota vefinn til verðmætasköpunar fyir sig og sína.

Ég ætla sem sagt að freista þess að setja hér upp veglega og ítarlega vefkennslu fyrir fólk sem hefur áhuga á að byggja upp sína eigin netsíðu á þann hátt að úr henni verði verðmæti, þ.e. að vefsíðan verði söluhæf og gefi af sér tekjur.

Kennslan miðast fyrst og fremst við byrjendur en þeir sem eru lengra komnir munu áreiðanlega geta haft eitthvað gagn af henni líka enda lærir maður svo lengi sem maður lifir í Netheimunum.

Hvernig er kennt?

Kennslan verður að stórum hluta til í textaformi með stuðningsmyndum en ég mun einnig taka upp videó til að útskýra betur hvern verkþátt fyrir sig.

Kennslan skiptist til að byrja með í fjóra mismunandi flokka og mun ég e.t.v. bæta við fleiri flokkum síðar. Þeir flokkar sem ég byrja hins vegar á eru eftirfarandi:

1. Grunnkennsla.

Þessi kennsla er ætluð algjörum byrjendum, þ.e. þeim sem hafa litla sem enga þekkingu á hvernig á að setja upp vefi upp á eigin spýtur og opna þá á Netinu. Þessi þekking er að sjálfsögðu nauðsynleg öllum þeim sem vilja búa sér til verðmæti á vefnum.

2. Uppsetning.

Þessi kennsla er ætluð þeim sem hafa grunnþekkinguna úr grunnkennslunni. Hér verður farið yfir þær leiðir sem hægt er að fara í uppsetningu á vefum. Í aðalhlutverki verður blogg- og vefsíðukerfið WordPress (sem þessi vefsíða er skrifuð í) en ég mun einnig taka fyrir og útskýra önnur kerfi þó ekki sé nema á lauslegan hátt.

3. 77 leiðir til að búa sér til tekjur með vefsíðunni sinni.

Hér verður farið yfir algengustu leiðirnar sem fólk og fyrirtæki hafa hingað til notað til að skapa sér verðmæti og tekjur út úr vefsíðum. Hverjum og einum er að sjálfsögðu í sjálfsvald sett hvaða stefnu hann/hún vill taka, en það er eins með vefinn og venjulega viðskiptauppbyggingu að möguleikarnir til verðmætasköpunar á Netinu eru óþrjótandi.

4. Spurt og svarað.

Fjórði flokkurinn, spurt og svarað, verður síðan opinn fyrir þá og þær sem vilja spyrja spurninga eins og “Hvernig á að gera (eitthvað)?” eða “Hvernig á að leysa (tiltekið vandamál)?” Öllum slíkum spurningum hyggst ég svara af bestu getu og með tímanum gæti hér orðið um mikinn fróðleiksbrunn að ræða fyrir marga fleiri en bara þá sem spyrja.

Hvenær byrjar kennslan?

Hún byrjar fljótlega. Ég ætlaði reyndar að vera byrjaður, en upp kom persónlegt mál sem ég þarf að ljúka áður en ég hefst handa við kennsluna. Vonandi verður það fyrir næstu mánaðarmót en annars byrjar þetta bara þegar það byrjar.

Athugið:

Ég vil taka það fram að þessi kennsla er ekkert sem fer upp á svipstundu. Þvert á móti þá ætla ég mér allan þann tíma sem ég þarf til að koma henni upp í fullvissu þess að hún verður alltaf betri og betri í hvert skipti sem ég bæti við hana. Það kæmi mér ekki á óvart ef það tæki mig heilt ár að koma kennslunni sómasamlega frá mér.

Ég vona því að þeir sem fylgjast með þessu sýni mér þolinmæði á meðan á uppbyggingunni stendur. Þetta er það viðamikið að vonlaust er að gera allt í einu. Svo vona ég bara að sem flestir sem hingað koma eigi eftir að hafa gaman af þessu og vonandi munu einhverjir geta nýtt sér það sem ég hef fram að færa.

————-

© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku