Sumir skapa hamingju hvar sem þeir koma.
Aðrir skapa hamingju um leið og þeir fara.

———-

Ég ætla mér að lifa að eilífu. Hingað til hefur það gengið vel.

———-

Gestrisni er að geta látið gestunum líða eins og þeir séu
heima hjá sér þegar þú vildir óska þess að þeir væru þar.

———-

Stjórnmálamenn eru eins og bleiur. Það þarf
að skipta þeim út … og af sömu ástæðu.

———-

Þekking er að vita að tómatur er ávöxtur.
Viska er að nota hann ekki í salat.

———-

Fyrsti fuglinn nær kannski í orminn en
það er mús númer tvö sem fær ostinn.

———-

Betra er að þegja og vera talinn asni
en segja eitthvað og staðfesta það.

———-

Maður er aldrei of gamall til
að læra eitthvað heimskulegt.

———-

Góð heilsa er hægasta leiðin til að deyja.

———-

Sá sem er alltaf með báða fætur á
jörðinni kemst aldrei í buxurnar.

———-

Einu sinni beið ég eftir að hitta þá einu réttu.
Núna held ég að hún hljóti að hafa orðið fyrir bíl.

———-

Áfengi leysir engin vandamál.
Reyndar gerir mjólk það ekki heldur.

———-

Ef þú heldur að enginn sé að hlusta
á þig, prófaðu þá að reka við.

———-

Vandamálið við að vera stundvís er að það
er enginn mættur til að meta það við þig.

———-

Aðeins dauðir fiskar fylgja straumnum.

———-

Fólki má skipta í þrjá hópa;
þá sem láta hlutina gerast,
þá sem horfa á hlutina gerast
og þá sem eru að spá í hvað gerðist.

———-

Sekt er skattur fyrir að gera eitthvað rangt.
Skattur er sekt fyrir að gera eitthvað rétt.

———-

Aðvörun: Neysla áfengra drykkja getur
fengið þig til að halda að þú getir sungið.

———-

Egg og beikon: Dagsvinna fyrir
hænuna, ævistarf svínsins.

———-

Eini staðurinn þar sem þú getur séð
árangur á undan vinnu er í orðabók.

———-

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku