Ha, ha, ha … þarna fórum við heldur betur illa með ykkur.

Í gær birtum við nefnilega “frétt” um að Herrmann nokkur Lang væri orðinn ritstjóri á Greflinum.com.

Þetta var að sjálfsögðu bara snemmbúið aprílgabb. Þessi Herrmann Lang er ekki til og því síður ferilsskrá hans.

Samt lét fjöldi fólks blekkjast, okkur hér á ritstjórninni til mikillar ánægju, enda var leikurinn til þess gerður. Vonandi verða sam engir af fjölmörgum lesendum okkar sárir yfir gabbinu.

Við þökkum öllum sem tóku þátt í gríninu kærlega fyrir þátttökuna, sérstaklega hinum vefmiðlunum, amx, eyjunni, dv og mbl.

  3 Responses to “Ha, ha, ha. Fyrsti apríl!!!”

  1. Ahhh … ha,ha,ha. Frábært gabb. Við hér í Samtökum Siglfirðinga létum heldur betur taka okkur í göngin … og þá meinum við auðvitað Héðinsfjarðargöngin.

    Líklega besta aprílgabb fyrr og síðar.

    Kveðja frá Samtökum Siglfirðinga.

    Þráinn.

  2. Mig langar til að óska ykkur á Greflinum til hamingju með þetta velheppnaða gabb. Meira að segja ég lét blekkjast þótt ég hafi vitað af þessu fyrirfram. Ef ég væri ekki þegar búinn að kaupa öll hin vefritin þá myndi ég kaupa Grefilinn í hvínandi hvelli.

    Bingi.

  3. Til Grefilsins.

    Ég hélt fyrst að það væri verið að gera grín að mér í þessari frétt og var þegar búinn að senda Jóni Steinari skipun um að finna hvað við hefðum á ykkur þarna á Greflinum. Þá fattaði ég grínið.

    Til hamingju með aprílgabb aldarinnar.

    Ha, ha, ha.

    Davíð.

    ps. Hentu bara bréfinu sem Jón var því miður búinn að setja í póst.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku