Guð almáttugur í Smárlind í dag
Áritar jólatré á milli 16:00 og 18:00
Guð almáttugur er nú á hinni árlegu hringferð sinni um himingeima og heiðrar um leið Íslendinga í fyrsta sinn með persónulegri nærveru sinni.
Guð mun snæða hádegisverð á Bessastöðum í boði Ríkisstjórnarinnar og þiggur síðan nokkrar oblátur með kaffinu í Kirkjuhúsinu í boði Þjóðkirkjunnar áður en hann heldur í Smáralind þar sem hann mun árita jólatré frá kl. 16:00 til 18:00 og segja eldri borgurum jólasögur.
Að sögn Þórðar Ingvarssonar, biskupsritara, verður Guð síðan viðstaddur Guðsþjónustu í Vopnafjarðarkirkju, Selfosskirkju og Safnaðarheimili Suðurnesja áður en hann flýgur af landi brott kl. 20:00.
“Þetta er einstakt tækifæri fyrir landsmenn að sjá Guð með eigin augum og ætti að slá á allar samsæriskenningar um að hann sé ekki til,” sagði Þórður í samtali við Grefilinn í morgun.
Er Jesú með í för?
“Nei því miður komst hann ekki að þessu sinni en við ætlum að athuga hvort við fáum hann ekki til að koma á næsta ári, og þá til að vera í Kringlunni.”
Sést hann vel og heyrir maður alveg í honum?
“Hverjum?”
Guði. Sést hann vel og getur maður heyrt eitthvað í honum?
“Já, að sjálfsögðu en auðvitað sjá þeir hann einir sem á hann trúa, það hefur alltaf verið þannig,” sagði Þórður.
Þess ber að geta að Kappakstursfélag Hafnarfjarðar verður á sama tíma með bensínsölu í Bónus við Smáratorg fyrir þá vantrúuðu og aðra sem geta ekki séð Guð almáttugan vegna trúarskoðana sinna.


Athugasemdir