Bylting á heilsuvörumarkaði!

“… án nokkurs vafa mesta uppfinning aldarinnar.”
- Svanur Sigurlinnason, læknir.

HEILSUSTEINNINN

Hellir í þig heilsunni!

Rannsóknir hafa sýnt að HEILSUSTEINNINN fyllir fólk ekki
bara af heilsu heldur læknar hann líka ýmsa kvilla eins og táfýlu,
vörtur, heimsku, leti, litblindu, sogþörf og ótímabæran dauða.

Eftir hverju ertu eiginlega að bíða?

Fáðu þér HEILSUSTEININN strax
í dag og fáðu heilsuna aftur í kvöld.

Frábært verð, aðeins kr. 19.229,-

“Ég keypti mér HEILSUSTEININN og mæli heilshugar með
honum við alla sem vilja betri eða a.m.k. einhverja heilsu.”
- Jónína Sen, trúboði.

“Ég missti báðar fætur í vinnuslysi fyrir nokkrum árum. Eftir að ég
fékk mér HEILSUSTEININN þá uxu á mig glænýjar lappir.

- Selur Norðdal, trúboði.

“Ég keypti mér HEILSUSTEININN og um
kvöldið reis maðurinn minn upp frá dauðum
.

- Meryl Jónsdóttir, trúboði.

TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ

Kauptu HELSUSTEININN fyrir næstu mánaðarmót
og fáðu tæplega 13% afslátt af ORKUSTEININUM.

Gefðu góða sumargjöf – Gefðu heilsu.

——

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku