May 212011
Heimsendinum frestað
Þær fréttir hafa nú borist að heimsendirinn sem spáð var og átti að vera í dag verður víst ekki fyrr en 21. október næstkomandi.
Ekki liggur fyrir hvað gerðist en svo virðist sem málið hafi verið misskilningur og að dagurinn í dag sé í raun upphafið að heimsendinum en ekki heimsendirinn sjálfur.
Samkvæmt áreiðanlegustu heimildum úr innsta búri hefst í dag burtkvaðning þeirra sem eru Guði þóknanlegir og standa þessir fólksflutningar víst yfir í heila fimm mánuði.
Þegar þeim er lokið munum við hin brenna í heimsendaeldinum. Ekki fyrr.
Gleðilegt sumar.

Athugasemdir