Vegna flutninga til Færeyja verð ég að finna nýtt heimili fyrir hana Herdísi mína sem fyrst, Ach Processing helst í Hlíðunum.
Herdís er tveggja ára gömul, blíð, gæf oggóð við börn og alveg einstaklega kelin lítil, dúsínu rúsína.
Finnst best að hjúfra sig upp við hálsinn og elskar að láta strjúka sér um mallakútinn.
Borðar alls konar afganga og leyfar og gefur annað slagið frá sér krúttlega eggja- og sósulykt.
Herdís þarf stundum að geta komist út en annars þarf nánast ekkert fyrir henni að hafa. Hún getur t.d. dundað sér í eldhússkápunum allan daginn, út og inn.
Ath.: Aðeins gott heimili kemur til greina.
Ps. Herdís er að sjálfsögðu örmerkt, geld og nýkomin úr ormahreinsun.
—————

Athugasemdir