Þingmenn Sjálfstæðisflokksins borðuðu síld í morgunmat

Leystu vind í miðri ræðu

“Rosaleg skítalykt”, segir Silja Jóhannesdóttir, þingvörður.

Silja Jóhannesdóttir þingvörður.

Til nokkurra stympinga og troðnings kom við neyðarútgang Alþingishússins í morgun þegar þingmenn reyndu hver sem betur gat að koma sér út úr húsinu eftir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins höfðu allir leyst vind á sama tíma.

“Katrín Júlíusdótir var að svara fyrirspurn í pontunni þegar sjálfstæðismenn leystu vind, allir sem einn”, sagði Silja Jóhannesdóttir þingvörður í viðtali við Grefilinn. “Mér skilst að þeir hafi allir fengið sér rúgbrauð með síld, eggjum og lauk í morgunmat og súran hval sem Kristján í Hval hf. sendi þeim. Svo kemur bara þessi líka rosalega skítalykt.”

Eftir að búið var að rýma húsið kom slökkvilið Reykjavíkur á vettvang og reykræsti. Um klukkustundar hlé varð á þingfundi vegna þessa.

“Þetta var óheppilegt en svona getur alltaf gerst”, sagði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og vildi koma á framfæri þökkum til slökkviliðsins fyrir skjót viðbrögð.

En heldurðu Bjarni að þetta muni ekki rýra virðingu Alþingis?

“Nei, ég held ekki. Þetta var óheppilegt en svona getur alltaf gerst”.

Enn eimir eftir af skítalyktinni í Alþingishúsinu og er ekki reiknað með að hún hverfi með öllu fyrr en eftir næstu kosningar.


 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku