Rómantík á Alþingi
Þau Höskuldur Þórhallson og Ásta R. Jóhannesdóttir gengu nú undir kvöld í hjónaband, öllum að óvörum. Eins og kunnugt er lenti þeim dálítið saman í vinnunni í dag en ákváðu síðan að fyrirgefa hvort öðru og ganga í hjónaband til að sýna einlægni sína.
“Hvað getur maður annað en elskað þessa konu”, sagði Höskuldur við fréttamenn eftir vígsluna í Fríkirkjunni. “Við Ásta höfum verið að skjóta okkur saman síðan í fyrra og eftir rifrildi okkar í dag þótti okkur réttast að staðfesta ást okkar til að sýna landsmönnum að við meintum ekkert með þessu.”
Þau Höskuldur og Ásta eru þegar farin í brúðkaupsferð sína vestur á Látrabjarg þar sem þau hyggjast dvelja við fuglaskoðun næsta hálfa mánuðinn.


Athugasemdir