23 hænur létust í eldsvoða í Ystuvík.

Skelfilegt, segir Ögmundur Eyland, hænsnabóndi.

Allt tiltækt slökkvilið í Ystuvík var kallað að bænum Klöpp í nótt eftir að eldur kom upp í hænsnahúsinu við bæinn. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var húsið alelda og lítið annað hægt að gera en að slökkva í rústunum enda varð engu bjargað  úr því sem komið var.

Hræðileg aðkoma: Það var skelfilegt um að litast í hæsnahúsinu á Klöpp eftir að slökkt hafði verið í síðustu glæðunum; steiktar hænur út um allt.

Í húsinu bjuggu 70 hænur og tókst 47 þeirra að forða sér undan eldhafinu í tæka tíð. 22 hænur brunnu inni en ein lést þegar hún var að hjálpa til við slökkvistarfið. Allt brann sem brunnið gat í húsinu, þar á meðal ný vatnsaflsvél sem hænurnar höfðu lagt mikla vinnu í að smíða.

“Þetta er algerlega hrikalegt”, sagði Ögmundur bóndi við fréttamann. “Hús og vélar má alltaf bæta, en líf sem tapast fær enginn bætt.”

Eldsupptök eru ekki að fullu ljós en líklegast er talið að kviknað hafi í út frá ófrágengnum rafmagnsköplum í hálmgeymslunni.

Ekki er hægt að greina frá nöfnum hinna látnu að svo stöddu.

  3 Responses to “Hrikaleg aðkoma:”

  1. Loksins þorir einhver að koma með aðra hlið á málinu og segja að dýr séu lifandi verur og þeirra LÍF verði ekki bætt – óþolandi að heyra eingöngu menn segja að mikið TJÓN hafi orðið þegar 20 kindur brunnu inni – að þarna hafi “ferskt kjöt farið fyrir lítið” Líf ALLRA er dýrmætt, meira að segja kakkalakkinn hefur sín réttindi og hann er orðinn verulega þreyttur á því að það sé alltaf trampað ofaná hann án þess að hann fái eina sekúndu til að útskýra sitt mál.

  2. Hvaða réttindi hefur kakkalakkinn?

  3. Kakkalakkinn hefur sömu “réttindi” og öll önnur dýr jarðar. Hans eina ósk er að fá að lifa í friði við sínar kjöraðstæður sem eru hiti, raki, dimma og nóg að borða. Hann getur ekkert gert að því hvernig hann lítur út frekar en Skötuselurinn sem ekki telst fríður. Helsta “vandamál” kakkalakkans er að við höfum nákvæmlega ENGIN not fyrir hann – Það væri gaman að vita hvaða ráðstafanir yrðu gerðar ef menn kæmust að því að það væri aðeins EINN kakkalakki á lífi á allri jörðinni? Í þjóðaratkvæðagreiðslu yrði niðurstaðan sú að 99,9% jarðarbúa myndu vilja TRAÐKA á hann eftir ca 0,5 sekúndna umhugsun. Hvar eru dýarverndunarsamtökin þá?

    Kakkalakkinn er því miður enn neðar í virðingarstiganum í dýraríkinu en sjálfur Arfinn í plönturíkinu.

 
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku