- Blekkti alla um langa hríð -

Hefur aldrei farið inn á Facebook

Játar að orðrómurinn er sannur.

Illugi meðan allt lék í lyndi.

Eins og allir vita þá hefur sá orðrómur verið á kreiki um skeið að hinn þekkti rithöfundur, skáld og lísfkúnstner Illugi Jökulsson hafi í raun aldrei nokkurn tíma farið inn á Facebook, kunni ekki á tölvu og því síður á Netið.

Nú hefur þessi orðrómur fengist staðfestur af Illuga sjálfum sem hingað til hefur ekkert viljað tjá sig um málið.

“Já, mér finnst bara best að leggja spilin á borðið úr því sem komið er,” sagði Illugi Jökulsson á blaðamannafundi sem hann efndi til síðdegis í gær.

“Ég hef aldrei farið inn á Facebook, kann ekki á tölvu og því síður Netið og vil bara vera látinn í friði enda frekar feiminn að eðlisfari og ekkert gefinn fyrir athygli af neinu tagi.”

En hvernig fórstu þá að því að þykjast skrifa allar þessar Facebook-færslur og statusa?

“Ég keypti bara Sjálfvirka bloggarann hjá Greflinum og fékk mér svo Feisbúkkara í hann. Svo sett ég hann bara í gang. Flóknara var það nú ekki.”

En allar greinarnar sem þú hefur skrifað og birst hafa hingað og þangað?

“Sama. Allt gert með Sjálfvirka bloggaranum.”

Þannig að þú mælir hjartanlega með Sjálfvirka bloggaranum?

“Engin spurning. Ég kýs Sjálfvirka bloggarann. Hvað með þig?”

Vinsamlega athugið. Ofangreint viðtal er í raun auglýsing fyrir Sjálfvirka bloggarann og hvorki í tengslum við annað ritstjórnarlegt efni sem birtist hér á Greflinum né raunveruleikann. Öllum aðdróttunum þess efnis verður umsvifalaust vísað á bug.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku