Skrifað undir í morgun
„Nú er ég glaður og reifur“
segir Össur Skarphéðinsson, Evrópumálaráðherra
Ísland og þar með Íslendingar gengu formlega í Evrópusambandið í morgun þegar Össur Skarphéðinsson skrifaði undir Evrópusambandsaðildarsamning fyrir hönd þjóðarinnar. Í samtali við Grefilinn stuttu eftir undirskrift sagðist Össur vera bæði glaður og reifur með þessi málalok og að það hefði verið snilldarlegt af sér að nota tækifærið og skrifa undir á meðan allir Íslendingar væru uppteknir af öllu hinu ruglinu.
“Já, ég er heldur betur glaður og reifur núna. Ég hef stefnt að því lengi að koma Íslandi undir verndarvæng minna manna í Brussel og nú þegar það hefur tekist gæti mér ekki liðið betur.”
En átti aðildin ekki að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu?
“Æ, þessar þjóðaratkvæðagreiðslur eru svo þunglamalegar”, sagði Össur, “auk þess sem það er ekki hægt að stóla á útkomuna úr þeim.”
Og eru allir í Ríkisstjórninni sáttir við þetta?
“Steingrímur og þau voru eitthvað að væla í morgun en eftir að við Jóhanna gáfum þeim ávaxtasleikjó þögnuðu þau sem betur fer. Þau geta verið ægilega þreytandi.”
En hvað með stjórnarandstöðuna?
“Iss, hún er nú alltaf á móti öllu auk þess sem hún hefur ekkert vit á Evrópumálum. Hún er líka eins og allir Íslendingar upptekin af öllu hinu ruglinu.”
Þess má geta að Össur er núna kominn í frí og ætlar að eyða tímanum næstu daga við silungarannsóknir í Soginu ásamt völdum vinum úr Evrópusambandinu.

Athugasemdir