Búinn að fá vinnu í bakaríi
“Nenni þessu ekki lengur”, segir Jónas.
Hinn landsþekkti blaðamaður og veitingahúsaskelfir Jónas Kristjánsson, hefur ákveðið að leggja tölvuna og takkaborðið á hilluna og láta loka fyrir Netið hjá sér.
“Æi, ég er bara orðinn eitthvað svo agalega ergilegur”, sagði Jónas í samtali við Grefilinn núna síðdegis. “Maður getur bara ekki haldið svona áfram endalaust í öllu þessu rugli og bófahasar sem búinn er að vera hér.”
En við sjáum ekki betur en að þú sért enn að skrifa?
“Já, nei, nei, ég er bara að klára það sem ég var búinn að skrifa í gær og í morgun. Best að koma þessu frá sér áður en ég loka endanlega.”
Og hvað á að taka sér fyrir hendur?
“Ég er að fara að vinna í bakaríi vestur á Melum.”
Þannig að það má segja að þú sért að fara úr kjaftæðinu í hveitið?
“Já, ætli megi ekki bara segja það,” segir Jónas og hlær innilega eins og honum einum er lagið. “Annars er ég nú meira fyrir smjörklípurnar.”
Við hér á Greflinum óskum Jónasi velfarnaðar og hver veit nema við lítum við hjá honum næst þegar okkur vantar rúsínubrauð.


Athugasemdir