Stórfrétt aprílmánaðar:
Jónína Ben og Gunnar á Krossinum skilin
Jónína tekin saman við Svan Sigurbjörnsson lækni.

Jónína: "Svanur er draumaprinsinn minn."
Jónína Ben, heilsufrömuður, og eiginmaður hennar, Gunnar á Krossinum, hafa ákveðið að skilja að skiptum og skipta með sér búi. Jónína hefur nú þegar flutt út frá Gunnari og inn hjá Svani Sigurbjörnssyni, lækni, en ástarsamband þeirra er meginorsök skilnaðarins.
“Já, ég er orðin ástfangin af öðrum manni og hann heitir Svanur Sigurbjörnsson og er læknir,” sagði Jónína á blaðamannafundi í morgun um málið. Þar kom einnig fram að hún og Svanur hyggjast ganga í hjónaband sem allra fyrst.

Svanur: "Jónína er draumaprinsessan mín."
“Hvað getur maður annað en orðið ástfanginn af þessari konu,” sagði Svanur m.a. á fundinum. “Og svo fær maður auðvitað dítox í kaupbæti. Ég mæli með dítox fyrir alla aldurshópa.”
En hvað segir Gunnar um málið?

Gunnar: "Hverjum er ekki sama?"
“Ég? Ég er algjörlega sáttur. Svona hlutir gerast og ekkert við því að segja. Nú set ég stefnuna bara eitthvað annað og veit að Guð mun leiða mig á rétta braut.”
Þau Jónína og Svanur munu taka á móti vinum og velunnurum á bílasölu Guðfinns í dag á milli kl. 16 og 17.
Allir hjartanlega velkomnir.
—–

Ja, hvur grefillinn!
Mættu einhverjir á bílasölu Guðfinns?
Já, já, hellingur sagði Guðfinnur. Fólk trúir öllu.