===== ===== ===== ===== ===== =====

KONUR – KONUR – ATHUGIÐ!

Viltu eða þarftu að ná þér í karlmann? Er þessi sem þú ert með alltaf
að reyna að sleppa – eða laumupokast eitthvað í burtu? Viltu tryggja
þér tangarhaldið í eitt skipti fyrir öll?

Sé svo þá er lausnin komin!

KARLAKRÆKJAN!
Krækir í kallinn!

Karlakrækjan er byltingarkennd uppfinning sem tryggir konum
algjört tangarhald á hvaða karlmanni sem er! Það sleppur ENGINN
úr Karlakrækjunni nema ÞÚ ákveðir það!!!

  1. Innbyggður innanhússskynjari með flautu!
  2. Innbyggður rafstuðari (allt að 50 volt)!
  3. Innbyggt staðsetningartæki, allt að 50 km radíus!
  4. Innbyggður lyktarskynjari!
  5. Innbyggður skrefamælir!
  6. Innbyggður augngotaeyðir!
  7. Innbyggður sjússamælir með viðvörunarljósi!
  8. Innbyggð hálsól fyrir búðarráp og fermingarveislur!
  9. Dráttartaug og beisli fylgir ekki með!


Er ekki kominn tími til að taka völdin?

Fáðu þér Karlakrækju STRAX
í dag og krækt’enni í karlinn!

Ath.: Hægt að tengja við peningaprentara!

TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ

Kauptu KARLAKRÆKJU fyrir hádegi á morgun og
fáðu TVÆR glærar herranærbuxur með – FRÍTT!

(Gildir ekki með öðrum tilboðum – gildir aðeins á meðan birgðir endast)

==========================

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku