Viltu breyta? Þarftu að bæta? Ertu að ofsækja?

Þá þarftu að fá þér …

SAMHENGISKLIPPARANN
Og samhengið fer í sundur!

Samhengisklipparinn fæst nú í þremur stærðum, allt eftir því
hvort klippa á stök ummæli, spjallþráð eða heilu bloggsíðurnar.

Hvað segja ánægðir viðskiptavinir:

“Ég mæli með Samhengisklipparanum frá Greflinum”.
- Matthías Ásgeirsson, eigandi Vantrúar.

“Ég hef notað Samhengisklipparann við kennslu
og glærusýningar með góðum árangri.”
- Bjarni Randver, stundakennari.

“Ég nota Samhengisklipparann á hverjum morgni þegar ég
er að lesa í Biblíunni. Þannig skil ég hana mun betur.”
- Hjalti Rúnar, Guðfræðingur.

Tilboð – Tilboð: BARA í dag!

Kauptu sex Samhengisklippara
og fáðu EINELTARA með, FRÍTT!

Verð aðeins 3,900.-
auk ærunnar.

Ath: Sendum líka á Siglufjörð.

  2 Responses to “Samhengisklipparinn”

  1. Eruð þið með álokara? Ég meina sjálfvirkan auðvitað.

  2. Sjálfvirku Álokararnir koma sennilega fyrir næstu kosningar um svipað leiti og Afneitararnir.

    Þangað til verður bara að nota handaflið eins og hingað til.

 Leave a Reply

(nauðsynlegt)

(nauðsynlegt)

   
© 2011 Grefillinn sjálfur. Suffusion theme by Sayontan Sinha
Sharing Buttons by Linksku