Gráta innra með sér
“Mjög tilfinninganæmar,” segir Stauri Hannesson, dýrasálfræðingur.

Kind. Vinsamlega athugið að myndin tengist efni greinarinnar ekki beint.
Stauri Hannesson, dýrasálfræðingur við háskólann í Berlín hefur nú sýnt fram á að kindur hafa líka tilfinningar. Hafa rannsóknir sem hann hefur gert fyrir Landssamband Lopapeysuframleiðenda sannað þetta með óyggjandi hætti.
“Kindur eru hinar fullkomnu lífverur”, segir Stauri. “Þær vilja engum mein gera, ráðast ekki á neinn og vilja bara fá að vera í friði einhvers staðar þar sem grasið er grænt. Um meira biðja þær ekki”.
Finnst þeim þær vera notaðar?
“Já, þeim finnst það og þá gráta þær innra með sér.”
En eru kindur heimskar?
“Ja, hvort er heimskara … að kunna að sprengja kjarnorkuasprengu eða kunna það ekki?”
Þess má geta að niðurstöður rannsóknarinnar má nálgast í heild hjá Landssambandi Lopapeysuframleiðenda.

Nei nú er mér nóg boðið, ef þessari vitleysu linnir ekki sé ég mig knúinn að kæra þig til málfræðingafélagsins. En mér er kunnugt um að það hafi verið gert áður. Ég gef þér 24 klukkustundir til að leiðrétta þetta ellegar ég kæri.