Kaupverðið ekki uppgefið
Skiptist jafnt til Jóns Ásgeirs.
Jólabasar kvenréttindafélags Suður-Múlasýslu verður haldinn í fimmta sinn á tjaldsvæði Dalvíkur um næstu helgi.
Eins og alltaf verður boðið upp á fjölda fallegra muna, svo sem handsaumaða lyfrapylsukeppi, pressaðar skonsur, mjólkursýrugerla og gömul teppi lítið notuð.
Að sögn Sillu Ingvars, aðalsprautu kvenréttindafélagsins, reikna herf … konurnar sem standa að jólabasarnum með að safna það miklum fjármunum með vörusölunni að hægt verði að hefja framkvæmdir við byggingu húss fyrir unga afbrotamenn í Norður-Múlasýslu.
“Síðast var markmiðið að safna fyrir fylleríi landssambands bakarameistara og það tókst svo við teljum okkur vel geta safnað fyrir þessu líka”, sagði Silla í samtali við Grefilinn.
Ekki fékkst uppgefið í ráðuneytinu hvert kaupverðið var en samkvæmt ritara sölunefndarinnar sem skrifaði undir samninginn við Kínverjann verður ágóðanum skipt jafnt til Jóns Ásgeirs.


Athugasemdir