Ég var að fá óvenjulegt bréf frá Siglufirði þar sem ég er kurteislega beðinn um aðstoð.
Þar sem ég er einstaklega bóngóður Grefill og legg mig ávallt fram um að leysa mál samlanda minna hef ég ákveðið að veita umbeðna aðstoð með því að birta bréfið hér í heild sinni:
====================
Siglufirði 20. mars árið 2011.
Kæri Grefill. Þú ert með mjög skemmtilega netsíðu.
Ég heiti Limur Bjarki Bóason og ég á heima á Siglufirði (fyrir norðan).
Ég var að skoða á Netinu í dag í tölvunni hjá ömmu og sá að netsíðan þín er vinsæl og fullt af fólki sem les og skoðar hana eins og ég geri. Ég held að helmingurinn sé konur, allaveganna sagði Nonni bróðir minn að ég ætti að halda það.
Ég hef einmitt alltaf langað að fá konu en svo er bara svo lítið af konum hér á Siglufirði, nema Unnur, en hún telst ekki með af því að hún er eitthvað lasin.
Þess vegna var ég að hugsa um hvort þú myndir vilja gá fyrir mig hvort allaveganna einhver kona sem kemur á síðuna þína á morgun eða hinn og les þetta vill koma hingað á Siglufjörð (norður) í sumar eða í næstu viku og leika og svona, fara í bað og vera svo smá í rúminu mínu (ekki að lesa samt, he, he, he).
Ég get líka sýnt henni fullt hér á Siglufirði, það eru göng og allt.
Hér kemur dálítið meira um mig:
- Ég er 157 sentimetrar langur, meira en allir á Siglufirði.
- Ég er 28 ára gamall (ungur, he, he, he) og myndarlegur segir amma.
- Mér finnst skemmtilegast að vera í baði eða úti að moka.
- Ég á þrjá græna froska, allt strákar. Þeir eru allir dauðir.
- Mér finnst best að láta klóra mér á bakinu og stundum framan á.
- Ég er góður við öll dýr nema fiska því ég borða fiska.
- Mér finnst uppáhaldsmaturinn minn vera sardínur.
- Ég reyki stundum stubba sem Nonni bróðir hendir út um gluggann en hef aldrei drekkt vín eins og Ómar.
Kæri Grefill. Ef þú sýnir þetta bréf á netsíðunni þinni og svo sér kannski einhver kona það sem vill koma og vera á Siglufirði og leika þá skaltu bara láta hana vita hvar Siglufjörður er eða segja henni að hringja í mig amma er í símaskránni.
Þinn vinur,
Limur Bjarki.
ps. Takk kærlega fyrir. Ég skoða alltaf netsíðuna þína.
ps.ps.: Læt fylgja með mynd sem amma tók af mér í baði í fyrradag. Hún er hérna niðri.


Athugasemdir