Laus skrúfa fannst á Austurvelli
Eigandans leitað – Vitni gefi sig fram.

Mynd frá vettvangi. Skrúfan er farin að láta nokkuð á sjá og því sennilega úr þingmanni eða eldri borgara.
Lögreglan í Reykjavík hefur undir höndum lausa skrúfu sem fannst á Austurvelli síðdegis í gær. Talið er að skrúfan hafi dottið úr eigenda sínum einhvern tíma á milli kl. 16:00 og 17:30. Hans er nú leitað.
Sjónarvottar og aðrir sem telja sig geta veitt einhverjar haldbærar upplýsingar um málið eru beðnir að láta lögregluna vita.
Tekið skal fram að ekki leikur grunur á að um saknæmt athæfi sé að ræða.

Er hægt að fá að máta þessa skrúfu, mín tíndist nefnilega fyrir þó nokkru síðan.
,,Mynd frá vettvangi. Skrúfan er farin að láta nokkuð á sjá og því sennilega úr þingmanni eða eldri borgara.”
Þú verður að hringja í Lögregluna til að panta tíma í mátun. Þeir yrðu örugglega fegnir bara ef þú myndir leysa málið.