„Stökk út um gluggann“
- segir Skúlína Ásadóttir, húsmóðir.
Fjölskyldan á Valdagötu 11 á Grenivík varð fyrir þeirri einkennilegu reynslu í gær að lifrarpylsa sem hafa átti í kvöldmatinn reyndist með lífsmarki.
„Já, við vorum sest við borðið en þegar ég ætlaði að skera lifrarpylsuna heyrðum við svona flaut og sáum svo að hún hreyfði sig. Svo bara allt í einu þá stökk hún út um gluggann.“
En var hún ekki soðin?
„Jú, jú, ég var búin að sjóða hana mjög vel, svona bara eins og ég hef alltaf gert.”
Að sögn Unna Guðjónssonar lögreglumanns þá er málið nú í rannsókn.
„Við teljum okkur vera komna á sporið og höfum kallað út leitarflokk. Meira get ég ekki sagt um málið á þessari stundu“, sagði Unni í samtali við Grefilinn nú síðdegis.
—————————
Uppfært: Lifrarpylsan sem stökk út um gluggann á Valdagötu 11 í gær fannst nú undir í kvöld við Akureyrarhöfn þar sem hún hafði orðið fyrir bíl og var ekkert lífsmark lengur að sjá með henni. Hún var frá SS.


Ég kaupi ekki lifrarpulsu frá SS aftur.
Það setur að manni óhug, ekki hægt að neita því.