„Mannréttindabrot“
segir faðirinn.
Mannanafnanefnd hefur úrskurðað að karlmannsnafnið Limur samræmist ekki íslenskri mannanafnahefð og því hefur umsókn um notkun þess verið hafnað. Á sama tíma hafa nöfnin Dúnn, Hóll, Jovina, Þinur, Laugi, Strútur, Kreistur, Kóngur, Vagnfríður og Steik fengið grænt ljós hjá nefndinni.
“Ég á ekki til orð”, segir Ásgeir Limsson, faðir hins ónefnda sveinbarns. “Faðir minn mátti heita Limur án nokkurra athugasemda frá þessari nefnd. Ég hlýt að mega nefna drenginn í höfuðið á afa hans?! Ég sé ekki betur en að hér sé freklega brotið á rétti mínum.”
Að sögn Vagínu Ormsdóttur, formanns mannanafnanefndar, var umsókninni hafnað á þeim forsendum að nafnið Limur gæti orðið drengnum til ama síðar á ævinni. “Okkar hlutverk er ekki síst að huga að velferð þeirra sem á að nefna þeim nöfnum sem sótt er um” segir Vagína.
En er Limur eitthvað verra en t.d. Vagína?
“Ég er búin að svara spurningunni”, sagði Vagína, “og ef þú vilt fara með þetta eitthvað lengra þá vísa ég á Pung Þórhallson hjá dómsmálaráðuneytinu.”
Grefillinn reyndi að ná í Pung, en missti síðan áhuga á málinu.


Athugasemdir